Var í bíó áðan, voða gaman. Ég og 3 af bestu vinum mínum fórum í regnbogann, settumst niður með popp og kók og myndin byrjaði.

Svo kom hlé og svona og svo eftir hlé settumst við aftur niður og konan við hliðiná angaði af reykingalykt.
Sko það var ekkert væg lykt heldur sko vel svæsin, ég ákvað bara að vera kurteis og segja ekki neitt, segi svo við vin minn sem situr hjá mér “ég þarf að pissa” og konan eitthvað “eruði ekki að grínast, drullisti til að þegja ógeðslegu krakkaógeð!” og ég er ekki að grínast ég var við það að missa mig yfir hana, segja henni það að mér væri óglatt vegna hennar, hún væri ókurteis og leiðnleg og mætti bara drullast annað í salinn eða bara heim að drepast úr fokkíng lungnakrabbameini eða eitthvað! Ég sagði samt bara “nei” og hélt áfram að horfa á myndina.

En ég meina, við höfum alveg jafn mikinn rétt og hún að fara í bíó, við borguðum okkar bíómiða alveg eins og hún, en samt af því við erum bara “krakkar” þá fær hún að skamma okkur, rífa kjaft og haga sér eins og fáviti.

Þoli ekki svona fólk sem heldur að það sé yfir aðra hafið! og svo þegar ég tók upp símann minn til að senda mömmu minni sms um að myndin væri að verða búin leit ég á hana og hún missti sig aftur! spurði hvort ég væri þroskaheft og kom bara illa fram við mig.

Þurfti að koma þessu frá mér, hefur einhver lent í svona einhversstaðar, ef svo er má sú manneskja endilega deila því með okkur umheiminum… :)