Ég ætla að vera eins og aðrir sem hafa gert þræði hérna …

Með þessum þræði verð ég komin með 2370 stig! Vá! Frábært!

Neinei, smá útúrdúr. Þetta var ekki tilgangurinn með þessu …

Það sem ég ætlaði að spurja var hvort einhver hefði hugmyndir um hvað ég á að gera næstu 7 klukkutímana. Ég er nefnilega að vinna í alla nótt. Ég þarf að sitja inni í litlu herbergi í anddyrinu á heimavistinni minni og hleypa fólki inn sem á að fá að fara inn á vist. Ekki mjög krefjandi starf, en ég þarf helst að finna mér eitthvað að gera.

Einhverjar hugmyndir?

Mér á eftir að leiðast miiiikið í nótt ….