Ohh ég er eiginlega að nöldra útaf sjálfum mér. Ég vakti í nótt til klukkan 4 - fór að sofa eftir að hafa fengið mér tvö kókglös. Las smávegis í einni bók eftir það. Síðan gat ég bara ekki sofnað! Og ég fattaði það eftir að hafa minnst skaupsins þar sem drengurinn var með koffíntöflur að ég gæti ekki sofnað vegna koffínsins sem var í þessum tveimur kókglösum. Seinast þegar ég kíkti á klukkuna var hún 05:51.

Vá ég tók mig til og dottaði til 8 - þegar að foreldrar mínir fóru til vinnu - ég vaknaði útaf því ég hafi skilið eftir opna hurð svo öll ljós komst inn í herbergið mitt. Og síðan gat ég einfaldlega ekki sofnað aftur.

Nú er ég kominn hingað, sárreiður útí sjálfan mig fyrir að hafa drukkið þessi tvö helv. kókglös>:(
Auk þess illa endurnærður eftir 2 tíma “svefn”.


Ohh.. ég bara varð að koma þessu frá mér…!


Kv. Coolistic.