Jæjja komið að mér að Nöldra..

Þannig er mál með vexti að ég fór út á gamlárskv kl 12 og fór í partý :)

Allt gekk rosalega vel og svoleiðis :) ég drekk of mikið og drepst… vakna ekki fyrr en kl 11 um morguninn og kveð þá sem eru með lítið sem enga meðvitund og strunsa út og heim. (15 mín labb)

en svo opna ég dyrnar.. foreldrarnig sitja í stofunni og það EINA sem þau segja er "Sæll, Hvernig var í nótt? erum við nokkuð orðin Afi og Amma?

ég Gapi, neita og dríf mig inní rúm.



En Það sem ég er að nöldra yfir er að ég held að foreldrum mínum sé bara nákvæmlega sama um mig :(

Ég bjóst við engum smá látum, Rifrildum og öskrum en Nei! bara 2-3 setningar og búið mál…


AHRG!

(þið sem hristið hausinn og kvartið yfir því að foreldrar ykkar Hrauna yfir ykkur ef þið komið ekki heim á skikkanlegum tíma, Þau sýna minstakosti næga væntumþyggju til að Skamma ykkur)


P.S ég er 17 ára KK (ef það breitir einhverju)

Bætt við 2. janúar 2007 - 23:43
kveð þá sem eru með lítið sem enga meðvitund
átti náttúrulega að vera Litla