vá ég er ekkert smá pirruð,, er í vinnunni og áðan kemur kona alveg geðveikt pirruð og heimtar hveitigrassafa,, jújú,, allt svosem í góðu með það,, ég vinn nú við að gera svona, en dónaskapurinn í henni, heimtar að fá að velja sér gras og bakka, rífur kjaft og ég veit ekki hvað, og labbar svo burt í fússi. Maður þarf náttúrulega að vera voðalega kurteis og góður alveg sama hversu mikið skítkast maður fær frá viðskiptavinunum, óþolandi að mega ekki segja neitt til baka. Samt elska ég vinnuna mína^^

Þótt þú eigir vondan dag þá þarf það ekki að bitna á starfsfólki verslana !