Ég var að hugsa hvort þið gætuð kannski bent mér á spakmælasíður eða svona síður með flottum ljóðum eða textum sem maður getur gefið fólki…..

Þetta er kannski ekki auðskilið það sem ég er að reyna segja….en ég er að leita eftir svona sem maður gefur fólki sem er frekar persónulegt…..

Eins og til dæmis gáfu foreldrar mínir mér þennan texta í fyrra í jólagjöf (ásamt styttu sem ég hafði augastað á ég veit ekki hvað lengi =D)
Mér fannst þetta fáránlega sætt, fékk tár í augun :P

Ég aldrei hef lofað
að brautin sé bein,
né blómstígar
gullskrýddir alla
leið heim.
Ég get ekki lofað
þér gleði án sorgar
á göngu
til himinsins
helgu borgar.
En ég hef lofað
þér aðstoð og styrk,
og alltaf þér birtu
þó leiðin sé myrk.
Mitt ljúfast barn
ég lofað þér hef,
að leiða þig sjálfur
hvert einasta skref.

En ég vissi ekki hvar ég ætti að setja þetta en mér fannst ég geta leitað eftir upplýsngum á huga svo ég setti þetta bara hér ;)
Afsakið ef ykkur finnst það ekki rétti staðurinn :D

Kv. Kylja