Ég var að koma á herbergið mitt á heimavistinni sem ég bý á. Nýkomin inn úr kuldanum og var búin að hugsa mér hvað væri gott að koma í herbergið mitt.

En nei, þá er ískalt í herberginu mínu. Auðvitað hafði húsfreyjan komið um helgina í mannlaust herbergið og lækkað hitann. Ég er með tvo útveggi og hitinn var undir -10° um helgina og hún lækkaði á ofninum!! Ég er búin að sitja undir sæng og reyna að læra eitthvað í tölvunni en það er bara svo kalt þegar ég fer með hendurnar undan sænginni!

Helvítis húsfreyjan!