Vá ég er ekkert smá pirruð. Vinur minn var að koma frá Flórída og hann keypti pakka handa mér, sem er bara mjög gott og allt í góðu með það. En þar sem ég öskraði svo mikið á skrekkskeppninni að ég fékk svæsna hálsbólgu get ég ekki talað við hann. Ég get heldur ekki borðað né drukkið neitt. Svo fór ég veik heim úr skólanum áðan, akkúrat í dag þar sem ég ætlaði með vinum mínum í bíó í kvöld.
ég er ekki að biðja um skítköst eða neitt þannig, þið getið átt þau sjálf, langaði bara að fá að nöldra smá.

Núna líður mér strax betur :)