Jæja, nú er bara eins og veturinn sé komin í öllu sínu veldi, það er ekki beint slæmt en ég set það samt í nöldur.

Það er voða kalt alltaf hreint og byrjar að snjóa sem er eiginlega bara kósý:D

En það sem mér finnst leiðinlegt við vetrarveður hér á Íslandi eru þessi blessuðu ofsaveður og stormar. Eins og mér finnst huggulegt að vera inni í vondum veðrum og allt það þá er það ömurlegt að þurfa aað drattast í skóla, æfingu eða vinnu í þessu ógeði!

Bleyta og hálka er líka einstaklega leiðinleg.

Og ég var að horfa á veðurfréttir og þar var búist við yfir 40 m/sek annað kvöld:/