Ég þoli ekki þegar að ég er að opna kexpakka og hann rifnar ekki strax. Það tekur svona 3 sek að labba í skúffuna og ná í skæri, en ég meina hver nennir að labba 2 metra að skúffunni og til baka að ná í skæri?
Svo kemur það studnum fyrir að þegar að maður er búinn að hella mjólkinni í glasið og ætlar svo að opna pakkann, en þá opnast hann ekki strax en þegar að hann opnast þá kippist hendin til og fer beint í glasið og það dettur auðvitað og öll mjólkin útum allt!
Öll skítköst leyfð á þetta, en endilega segiði mér frá sögum ykkar þegar að þið eruð að opna kexpakka. :)