Dagurinn í gær var ekki alveg minn dagur, ætlaði beint að sofa þegar ég kom úr skólanum en þegar ég kem heim koma stjúpmamma mín og litla stjúpsystir mín, Mímí og fara að segja mér að þær séu hættar í vinnunni sinni, það tók mig talsverðan tíma að skilja hvað þær voru að segja þar sem þær tala nánast bara portúgölsku, nokkur orð í íslensku. En þegar ég fór að átta mig á því sem þær sögðu langaði mig að fkn berja þetta fólk og langar en…

Oki forsagan: Frá því þær byrjuðu að vinna við að beita hefur fólkið sem þær vinna með verið hundleiðinlegt við þær, ófá samtöl þar sem ég hef hlustað á þær kvarta yfir þeim en öllum virðist vera sama, auk þess hefur enginn nennt að kenna þeim að splæsa(bindingaraðferð), þær hafa ýtrekað beðið um að fá að læra þetta en fólkið sem vinnur með þeim hefur allt sagt þeim að skilja þetta eftir, einhver annar tekur þetta að sér. Síðast á föstudaginn bað Mímí kallinn um að kenna sér þetta og var sagt að láta þetta eiga sig..

Í gær, það sem ég veit fyrir víst: Þá var fkn pólverjakellingin eitthvað fúl, yfir einhverjum splæsingum (sem hún gerði þó hún þyrfti þess ekki) svo kallinn hennar varð fúll, Mímí var búin að beita næstum hálfan bala yfir 200 króka, hann öskrar á hana fyrir að hafa ekki splæst, rífur allt upp úr balanum, það fer allt í flækju og skammar hana meira, Mímí hefur kannski aldrei verið neitt voðalega hörð af sér en hún skildi alveg hvað hann var að segja en hafði bara verið að gera það sem henni hafði verið sagt! Hún brotnaði niður og hljóp grátandi heim, það eitt er nóg til að ég verði nógu brjáluð út í þetta fólk. Þú lætur ekki pirring þinn yfir pirringi konunnar þinnar bitna á 15 ára stelpu sem getur ekki einu sinni svarað fyrir sig! Ég er kannski pínu overprotective en mig langaði að berja þetta fólk, við erum báðar mjög lágvaxnar, um 150, en hún er talsvert minni í sér en ég svo það fíkur rosalega í mig ef einhver er vondur við hana, ég var alvarlega að spá í að sleppa skóla í morgun til að ganga frá þessu liði! Það fkn grætir enginn litlu systur mína!

Stjúpmamma mín reddaði balanum hennar, kláraði að beita hann og sagði upp. Svo þagar fólkið var spurt út í þetta þá segir kallinn bara að kellinginn hans hafi verið pirruð og þetta hafi ekkert átt að bitna á Mímí heldur mömmu hennar og það á bara að réttlæta allt! Ekki nóg með það, svo kemur yfirmaðurinn heim og er að reyna að fá þær aftur í vinnu, kallinn búinn að búa út í Brasil og allt en fkn skilur ekki neitt og er að afsaka helvítis pólverjakellinguna og kallinn hennar. Litla systir mín fór aftur að gráta og hann var svo tilitlaus að ég fór fram og hellti mér yfir hann, sagði honum nákvæmlega það sem þær höfðu verið að segja mér, hundskammaði hann fyrir að leifa fólkinu að koma svona fram við þær bara af því þær tala ekki íslensku, en í þessari geðvonsku kom allt í einu í ljós að ég kann miklu meira í portúgölsku en ég hélt, ég þýddi þeirra á milli en þegar pabbi kom var ég fljót að láta mig hverfa út, sjálfstjórn mín var gjörsamlega á þrotum, mig langaði að berja kallinn þarna fyrir að leifa þeim að komast upp með þetta, að ég tali ekki um hvað mig langaði að ganga frá fólkinu…

Ég ætlaði í raun að skrifa þetta í gærkvöldi, en (þá hefði líklega varla skilist orð af því sem ég var að skrifa, þetta er ábyggilega allt í rugli hvort eð því ég titra en að reiði) þegar einhver fávitinn sem kom inn á verkstæðið, þurfti endilega að vesenanst í ljósunum ýtti á vitlausan takka og sló öllu út! Startaði tölvan ekki almennilega svo ég áhvað að fá mér bara göngutúr, sem var kannski ekki neitt voðalega gáfulegt þar sem aldrei þessu vant róaði það mig ekkert, ég rakst á eitthvað skilti og kíldi bara 6 sinnum af afli í það og áhvað að lokum að drífa mig bara heim áður en ég myndi mæta einhverju lifandi…

Stelpurnar náðu nú samt að róa mig aðeins þegar ég kom heim, eru náttla farnar að þekkja skapið í mér eftir að hafa verið á sama heimilinu svona lengi, plötuðu mig einhvernvegin til að syngja eitthvað af textunum mínum fyrir þær og að lokum fór ég í að útskýra hvað textarnir þýddu á portúgölsku, svo ég náði allavega 4 tíma svefni eftir þetta og er svolítið rólegri núna. Enda farin að finna aðeins til óþæginda í hnúanum en var líklega heppin hefði auðveldlega getað brotið hann, aftur…

En yrðuð þið ekki brjáluð ef einhver væri að nýðast svona á litlu systur eða bróður ykkar?
-