Svo er mál með vexti að ég er ein heima (+tveir klikkaðir hundar og einn sérstakur köttur), með hálsbólgu, ég get varla setið, legið hvað þá staðið það er allt óþægilegt- svo ég ákvað að fara í tölvuna….

Og þessi bölvaði skjár ég er búin að leigja tvær myndir en hvorug virkar, ég ætti eiginlega að hringja og kvarta en ég nenni því ekki::$
Svco ætlaði ég að fara og skemmta mér og horfa á disney channel (jey, ókey mér leiðist ekki dæma mig, þér hefur örugglega einhverntíman langað að horfa á tilgangslausar teiknimyndir..) En neiiiiiii, auðvitað ekki þá er allt ekki á ensku heldur á sænsku eða dönsku og ég skil ekki orð, erfitt líf

Ég held ég sé bara búin að kvarta nóg:S