Einhvern egin líður mér eins og ég sé svo gamall núna.

Svo að ég var í vinnunni minni, ég bý ekki svo langt frá enn ég hjóla í vinunna.
Svo ég legg hjólinu á sama stað og vanarlega og set lásinn á.
ER HJÓLINU EKKI FUCKING STOLIÐ !!!!!!
svo fór ég að leita aðeins þarna í kring, finn ég ekki lásinn bara allur í tætlum eftir garðklippur eða einhvað álíka.
What The Fuck !!!!!!
Ég var ekki viss um hvort ég ætti að tilkynna þetta til lögreglu því að ég vissi að hjólið myndi ekki finnast (það var stolið öðru hjóli af mér fyrr á árinu og ég tilkynnti til löggu og ekkert var gert í því), svo þegar ég var að labba heim nú á föstudaginn, finn ég ekki hjólið allt beyglað afturhjólið vantaði á og hnakinn líka einhverstaðar í runna.

AFHVERJU ?, hver er tilgangurinn í þessu ?

Og nú í dag, var ég labbandi með vinum mínum út í Bónus þegar einhverjir krakkar í 6 bekk eða einhvað komu upp að okkur voðalega svalir “hei yo áttu nokkuð síkó ?” og vinkona mín (sem reykir) sagði bara einfaldlega “já” þá voru þeir bara “já ætlaru að gefa okkur eða ekki ??” hún neitaði þessu bara þá voru þeir bara með einhverja stæla og kallandi á hana “tussa, deyðu mella !!!”

Svo er ég ekki að fatta slangur í okkur unglingonum t.d blellar eða blesstesest ?? (sem á að þýða hæ/sæll/blessaður)

Og að lokum er ég ekki að fatta, Sjoppulýð eins og ég kalla þetta, unglingar frá 13-16 sem hanga fyrir utan sjoppur reykjandi, brjótandi flöskur og rífandi kjaft við allt og alla.
T.d þegar ég var með vinum mínum og þeir fóru að hitta einhvern fyrir utan sjoppu í efra breiðholti, að sjá þetta fólk, einhverjir gaurar þarna voru að brjóta glerflöskur og kveikja í svo þegar einhver úr sjoppuni kom út að segja þeim að hætta þessu(þrífa eftir sig þá bara kom þessi voða kjaftur í þeim bara “kemur þetta þér einhvað fucking við ógeðið þitt ???, drullastu í burtu !”, svo þegar hringt er í lögguna þá rífa þeir bara enn meiri kjaft við lögguna.

ég skil ekki unglinga nú til dags.