Þegar ég sá í fréttum að fullt af ungmennum hafi safnast saman og horft á tvo sráka slást brá mér mjög. Hvað er að fólki? Eru unglingar nú til dags virkilega svona óþroskaðir? Ef að einhver les þetta sem fór á slaginn..hvað er svona gaman við að horfa á tvo stráka berja hvorn annan? Ég sá hluta af þessum slag í fréttum og þeir börðu hvorn annan mjög harkalega.

Svo hef ég heyrt að á bloggsíðum standi hversu ,,aumingjalegur" slagurinn hafi verið og þeir hafi ekki barist almennilega.

Hvað er að?! Finnst ykkur greinilega gaman að horfa á tvo stráka berja hvorn annan þangað til einn sigrar að lokum?

Fyrir utan hversu ósiðlegt þetta er er þetta líka hættulegt, fyrir utan allsskonar áverka sem þetta getur leitt af sér má til þess geta þetta leitt til dauða.

Það eru til þess dæmi, meira að segja hér á Íslandi að fólk hefur dáið vegna þess að það var kýlt mjög fast. Ég er ekki að segja að annar þessara stráka hefði getað dáið, ég er einfaldlega að benda ykkur á það hversu hættulegt þetta getur verið.

Ég skil ekki hvernig þið getið verið svona óþroskuð…

..þið takið þetta til ykkar sem þurfa þess…
An eye for an eye makes the whole world blind