Ég ætlaði að hringja áðan í Sambíóin í Álfabakka til að fá upplýsingar um hvort Beerfest væri sýnd þar. Fyrst þegar ég hringdi þá svaraði einhver stelpa, sem hafði ekki hugmynd um hvað ég var að tala. OK, ekkert mál, síðan ýtti ég á redial takkann á símanum til að sjá hvaða númer ég hafði hringt í, og það var rétta númerið 587 8900. Ég hringdi aftur og þá svaraði ekki í Sambíóunum Álfabakka heldur eitthvað allt annað, ekki það sama og áður. Nú hélt ég að það væri eitthvað að símanum mínum.
Ég prófaði að hringja úr GSM síma vinar míns í nákvæmlega sama númer en þá svaraði eitthvað allt annnað :S

Ég skil ekkert í þessu =/ Veit einhver annars svarið við spurningunni sem ég ætlaði að spyrja þá? Samkvæmt www.kvikmyndir.is er hún bara sýnd á Akureyri :S


Takk fyrir


Bætt við 29. september 2006 - 14:52
Þetta suckar =P