frostið kallar fram minningar, fyrir ári síðan byrjuðu vandræðin að elta mig uppi, síðan þann 13 jan ákvað ég að hætta öllu rugli og fara að gera eitthvað í mínum málum, nú finnst mér skrýtið að hugsa til baka, að hugsa sér, fyrir ári síðan var ég í ræsinu, átti ekkert, gat ekkert og var bölvaður dópisti, nú er ég í góðri vinnu á milli þess að vera í fæðingarorlofi með dóttur mína sem í dag er 6 mánaða, bý í þokkalegri íbúð og á bíl sem ég er sáttur við

frostið kallar fram skrýtnar minningar, eftir hverju munið þið þegar frostið kemu
stjórnandi frá fornöld kubbur#2950