Ég er með pínu samviskubit yfir því að nöldra þar sem annað fólk hefur örugglega miklu… alvarlegri hluti til að nöldra um en ég verð að fá útrás fyrir þessum pirring mínum.

1) Ég var með mesta maga/hausverk sem ég hef á ævi minni fengið í dag og ef ég vissi ekki betur þá hefði ég haldið að gelgjur alheimsins hefðu sameinað krafta sína til að pirra mig í dag.
Hvar sem ég var þá var einhver standandi fyrir aftan mig “Skiluru Gummi var alveg… á ég að hætta með henni í dag?.. og þá var ég alveg skiluru Nei Gummi hún á eftir að koma grenjandi til mín skiluru og ég þarf að hitta sigga í kvöld en þá kom Gummi alveg DJÓK!?! LOL” og síðan kom svona hræðilega hávær “HÍHÍHÍHÍHÍ” Þetta minnti mig helst á Janice úr friends… úfff Þið vitið ekki hversu fegin ég var að komast heim til mín í algjöra þögn.(Ég veit að þetta á örugglega eftir að móðga einhverjar gelgjur svo fyrirgefiði… Þið eruð örugglega yndislegt fólk en ég er bara verulega pirruð)

2) Síminn minn sendir ekki sms og tekur ekki við þeim …. Þetta orsakaði það að vinkona mín hélt að við ætluðum ekki í kringluna, ég hélt að við ætluðum í kringluna svo ég beið eftir henni í tvö tíma.(Reyndar ekki í kringlunni heldur heima hjá mér… annars væri ég miklu pirraðri heldur en ég er)

3)Ég skil ekki mína eigin skrift sem er ég veit bara mitt problem en ég ætla samt að nöldra yfir því.
Ég var með handskrifaðar glósur sem eru víst voðalega mikilvægar en ég skil ekki rass hvað stendur á blaðinu.. Ég hef verið að flýta mér svo þetta er allt út atað í skammstöfunum og í alvöru Blaðið er bara eins og einn stór blekblettur..

4) Hvað er málið með að halda að fólk hati sig ef maður talar ekki við viðkomandi?
Ég er afskaplega lítið fyrir að tala við fólk sem að ég þekki lítið sem ekkert þar sem mér þykir það bara óþægilegt og maður veit ekkert hvað maður á að segja og svona… en fólk tekur það víst alltaf sem eitthvað signal um að mér líki illa við það:S…
Þannig að : Þótt að fólk tali ekki við þig um það hversu fallegt veður sé úti eða spyr þig hvað þú gerðir í gær þá þýðir það ekki að viðkomandi líki illa við þig



Bætt við 21. september 2006 - 18:11
Ætla að taka það fram að gelgjurnar í lið 1 voru ekki að tala við mig þær töluðu bara svo hátt að ég komst ekki hjá því að heyra í þeim… og síðan er þetta sem er innan gæsalappa bara eitthvað sem ég bullaði.
Ég er ekki að dissa þig… Hálfviti!