Ég var bara í tölvunni eins og vanalega í dag og allt í einu hætti vinstri músartakkinn að virka! Hægri virkar ennþá en það er náttúrulega ekkert sniðugt að hafa hann bara…

Þetta er innbyggð mús á fartölvu (þið vitið svona skjár með 2 tökkum undir) og það virkar heldur ekki að tvíklikka á skjáinn en annars virkar hann fínt.

Ég prófaði að tengja mús við tölvuna og hún virkar ágætlega.

Hafa einhverjar stillingar breyst eða er takkinn virkilega bara ónýtur? Allt í einu??
Shadows will never see the sun