Halló, núna ætla ég að nöldara smá.

- Á afmælinu mínu þá fórum við út í sjoppu og vinir mínir fóru að kasta sn´joboltum og einhverju drasli í húsið hjá brjáluðum gaur í hverfinu, svo hlaupa þeir í burtu og ég kem (var að panta langloku í sjoppuni og var því á eftir þeim) og gaurinn (sem heldur á hafnaboltakylfu) byrjar að hlaupa að mér og ég sleginn af ótta byrja að flýja, neinei þá eltir hann mig og hótar mér öllu illu, loksins verður hann þreyttur og hættir að elta mig enn öskrar “ég veit hvar þú átt heima og ég ætla að drepa þig og fjölskyldu þína” einhvað í þann áttina.

- Var á balli í gær og ég fór inná baðherbergi til að kæla mig niður, svo komu einhverjir voða gaurar og ætluðu að lemja mig því að “aðal” gaurinn hélt því fram að ég hafi sofið hjá kærustu hans (ok WTF !?!).

- Er ekki í lagi að vera með svart hár nú til dags ?, ég litaði hárið á mér og nú er ég talinn “goth-ið” og “þunglindi gaurinn” svo er fólk bara hætt að tala við mig eftir að ég litaði hárið, og loksins er fólk nýbyrjað að tala við mig (húrra !)

- Svo í vinunni þá einhver kona sem kom brjáluð inní búðina (það var sunnudagur og ótrúlega mikið að gera) og það var bara einn kassi opinn, svo er hún bíðandi í röð og brjálast alveg því að hún þurfti að bíða lengi, svo að hún ruddist inná skrifstofu og rak á eftir fóki á aðra kassa.
Svo loksins kom að henni og var hún að versla talsvert mikið af grænmeti og ég man auðvitað ekki númerin sem maður skráir inní kassann og þarf að leita á blaði eftir tölunum, þá kemur hún með voða attitude og hálf öskrar á mig “kanntu bara ekkert á kassa vitleysingurinn þinn ?” svo ýti ég vörunum frá mér og hún sagði að ég hafi grýtt vörunum hennar frá mér og nærrum broti þær allar.
Svo þegar égf spurði hversu marga poka hún vildi (hún tók þrjá BTW) og hún hálf öskraði aftur á mig “geturu ekki talið drengur ? eða geturu bara ekki neitt ?” svo fór hún til verslunarstjórans og sagði að ég væri “dónalegur” við hana ?!?!?!

já þetta var smá nöldur frá mér.