Þú gætir þó verið með slæma tognun, en ekkert hægt að gera í því. Ég tognaði einu sinni í bakinu, þurfti að éta íbúfen og aðrar verkjatöflur af verkjum :S
það er reyndar kallað “bak-brot” og t.d. lang amma mín bak brotnaði þegar hún fór á klósettið vegna þess að hún gleymdi að kveikja ljósin og þar með hitti hún ekki á setuna…:S
ég veit alveg hvar rófubeinið er og þetta er ekki rófubeinið, það er ekki svona rosalega ofarlega, nema ég væri einhver mega fæðingargalli, og btw, þetta stóra sem er á milli hálsins og afturendans “kallast” bak
Sennilega hægt, en það þyrfti nákvæmlega ekkert til þess að detta endanlega í sundur. Ef þér er illt skaltu athuga hvort að þú sért með þursabit eða brjósklos eða aðara vöðvatenga verki. Kíktu til læknis, bakið er það sem, bókstaflega heldur þér uppi.
það sem hjálpar mér ekki er að ég kem úr rosalega “bakslæmri” fjölskyldu, slæm bök eru í báðum ættunum mínum og ég er með vöðvabólgu og læti og þetta er alls ekki að hjálpa til sko, mér líður eins og það er bein að stingast inn í lungun á mér í gegnum bakið á mér, ég á nefninlega stundum erfitt með að anda út af þessu…:S
Sennilegra að þú sért með brotið rif. Hættu að þykjast vera einhver voða sterkur gaur og farðu til læknis. Það er eitthvað að þér og síðasti staðurinn sem þú getur leitað hjálpar á er Hugi.
ég fékk einu sinni verk í bakinu, og það er vont að labba um. þetta gerðist eftir að ég vera að lyfta einhverju þungu og var að beita bakinu eitthvað vitlaust,
það sem virkar er að fara í heitan pott, heitt bað og slaka á. það bætir eitthvað
Sko, bakbrotin myndi þýða það að hryggsúlan á þér hefði farið í tvennt eða á skjön. Ég efast stórlega um að það sé mögulegt að ganga við slík meiðsli sérstaklega þar sem margir eiga erfitt með gang við slæma bakverki. Brjósklos t.d. og ef að hryggjarliðirnir færast til. Ég lenti í því og ég gat ekki einu sinni staðið í lappirnar, eða varla hreyft mig yfirleitt sársaukinn var svo mikill.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..