Hvað er versta slys sem þið hafið lent í? Þeas versta sjúkrahúsasaga sem þið eigið?

Þegar ég var yngri lenti ég í því að brósi sparkaði í hendina á mér með þeim afleiðingum að fingurinn á mér brotnaði við kjúkuna og stakkst útum lófann á mér, puttinn hafði styst um einn þriðja eða svo.
Ekki nóg með það heldur vorum við einir heima og foreldrarnir voru úti að skoða eitthvað hús til að kaupa, þannig að við þurftum að bíða þarna í klukkutíma með mig öskrandi eins og brjálæðingur. Loksins þegar við komum á sjúkrahúsið þá byrjuðu hjúkkurnar að sprauta mig milli puttanna, olnbogann og öxlina til að reyna að deyfa mig en því miður virka deyfilyf aldrei á mig þannig að ég hélt ég myndi deyja þegar helvítans læknahóran fór að toga í puttann minn og ekkert gekk. Það var ekki fyrr en hún spyrnti í magann minn með fætinum sem að hún náði að toga puttann út, og þá hélt ég í alvörunni að hún hefði rifið hann af.

Jæja, eigið þið einhverjar góðar sögur?<br><br>******************************
Kíkjið á <a href="http://kasmir.hugi.is/Engel/">síðuna mína</a> og takið þátt í SLÚÐRINU.
Uppfærð = 9. Septembe