Hvað er málið með lagið I love my chick með einhverjum rappara.. held að hann heiti Busta Rhymes..
Ég þoli ekki þetta lag!
Sem sagt það sem ég ætla að nöldra um þennan daginn er semsé það að ég næ engri stöð sem ég mögulega gæti haft áhuga á að hlusta á nema kannski Rás2 og FM957.
En Fm er svona stöðin sem ég hlusta hvað mest á en ég þoli ekki þessi rapplög, t.d. þetta I luv me chick & Shake that ass m. M&M og Nate Dogg… En þetta var frekar pointless.. Bara.. vildi deila hugsunum mínum með ykkur ágætu nöldrarar.
Og langaði bara að segja það að eiginlega eini þátturinn á FM sem ég get hlustað á án þess að það mörg lög sem ég hata er Heiðar Austmann..

En ég býst við því að ég þurfi bara að þola þetta eða skella CD í tækið þegar þessi fáránlega leiðinlegu lög að mínu mati fara í spilun á þessari hnakkastöð.

Takk fyrir lesturinn.. :D

Bætt við 24. ágúst 2006 - 18:46
Og ég má alls ekki gleyma nýja Justin Timberlake laginu, Sexyback! Að mínu mati alveg hræðilegt lag og álíka leiðinlegt!