Einhver gerði svona nöldurkork um flugur, sem minnti mig á að fiðrildi virðast ekki geta látið mig í friði.

Var að fikta í nýja símanum mínum áður en ég fór að sofa og eitthvað fiðrildi ákvað að fljúga á mig, endalaust oft.
Svona attacking me..
Þangað til að loksins þá settist það á hendina á mér og var bara fast þar.
Sama hvað ég hristi hendina og blés þá neinei það vildi ekki fara.
Þannig að ég fór út og lét það fjúka eitthvað út í vindinn.

En það hefur víst eitthvað reytt þessi blessuðu fiðrildi til reiði því morguninn eftir þegar ég var í sturtu, flýgur þá ekki eitt stikki fiðrildi inn í sturtuna mína, og ég panikka náttúrulega.
Vil ekki að eitthvað viðrildi sé að festast við mig vegna bleytu.
En já síðan flýgur það upp á vegg og ákveður að vera bara þar.
Og ég sver! það var að horfa á mig!!

I dont like them!
Kannski eru þau að hefna fyrir það þegar ég og vinkonur mínar veiddum fiðrildi til að geta óskað okkur og oftar en ekki drápum við fiðrildin þannig að þau eru sennilega að hefna fjöldamorðsins á göngustígnum hliðina á Kleifarseli 14.

Kannski ekkert svakalegt nöldur, langaði bara að lýsa pirringi mínum á þessum leiðinlegu brúngráu íslensku fiðrildum svona opinberlega.

takk fyrir mig
~bollasúpa :P