God, Mamma og pabbi eru búin að vera á Ak síðann á miðvikudag og ég búin að vera ein heima með bróður mínum, sem er bara ´buinn að vinna og svona rúnta um á Corvettu, hann voða ánægður og ekkert búinn að vera að pirrast í mér..

Mamma og pabbi komu heim í gær(18.Júlí) og það var strax byrjað: Birna, taktu úr uppþvottavélinni! Birna það er óhreynt handklæði ini á baði, settu það í þvottahúsið! Birna, Afhverju ertu ekki búin að ryksuga? Birna það eru föt í þurkaranum og í þvottavélinni, taktu þau úr!!

Svo vorum við að horfa á sjónvarpið, ég, mamma og bróðir minn og það kom auglýsing með körfuboltagaurum að hoppa út í sundlaug sem lítur út eins og körfuboltavöllur, við fórum að tala um það að þegar fyrsti maðurinn stekkur út í að maður fæ bara svona: aaa ætlar hann virkilega að hoppa? er hann brjálaður?" maður nottla vissi ekkert að það væri sundlaug þarna og svo segir mamma: Já maður fæ bara svona sjokk þegar maður sér þá stökkva! og þá svaraði ég: Nei mamma, maður fær bara sjokk þegar fyrsti maðurinn stekkur ekkert þegar allir stökkva því að maður veit að það er sundlaug þarna þegar fyrsti maðurinn stekkur! og þá segir bróðir minn að ég eigi ekki að nudda nefinu mínu í sárið og mamma segir mér að hætta að brúka munn við hana =@

Ég sagði þeim að hætta þessu helvítis bulli og skellti svo hurðinni á herberginu mínu.. og svo þurfti bróðir minn að öskra á eftir mér: Hvað er eiginnilega að þér? Ertu heimsk?

og núna sit ég hérna í þvílíku pirrings kasti að reyna að horfa á RockStar Supernova!!!

#$%&“”#$!"#%&$%&//($#$##$, blah, blah, blah

hefði Pabbi verið þarna hefði hann komið brjálaður inn til mín og hent mér út af heimilinu.. öskar á mig og hann hefði líka sagt mér að ég hefði bara getað búið hjá Kærastanum mínum víst að við séum svoa mikið saman og e-ð..