Ekki niðríbæ tjalda niður á Hlemmi Laugarvegurinn.
Heldur Landmannalaugar - Þórsmörk, sá Laugarvegur.

Heilir 55 kílómetrar sem ég er að fara að labba á næstu 3 dögum. Og langaði mig til að spyrja, hvort einhverjir hérna hafi labbað þetta kvikindi. Og segja mér hvenær þeir löbbuðu.

Ég er að labba í annað skipti, en núna með allan búnaðinn á bakinu. Í mitt fyrra skipti var ég bara með dagpoka, því það var bíll með kerru sem trússaði farangurinn.
Á bakinu á mér: 1/3 hluti tjald, matur fyrir 4 daga, primus, svefnpoki, dýna, aukaföt, snyrtidót[hreinsunarklútar, tannbursti og tannkrem, og sjampó.] Og svo eflaust eitthvað fleira auka.
C.a 11 kíló.

Tjáið ykkur elskurnar.
Langaði að segja ykkur þetta.
stjórnandi á /bretti, /vetraríþróttum og /heimilið