Mér þykir fátt betra en kinder-egg. Ef ég fengi einhverju ráðið myndi ég borða þau í hverju máli: morgunmat, í hádeginu og svo framvegis.

Hinsvegar skammast ég mín alltaf jafn mikið þegar ég versla þetta. Það er ekki beint kúl að versla sér nammi sem er gert fyrir börn. En þau eru rosalega góð.