Þetta er stórhættulegur fjandi. Var að sjá viðtal við kall á NFS sem virðist hafa gengið í svefni á því. Málið er að maður fer í þvílíka vímu af þessu og oftast endar það þannig að maður gleymir öllu sem maður gerði.

Ég var á þessu fyrir 2 árum síðan þegar ég átti erfitt með svefn. Lenti einu sinni í því að ég tók inn lyfið og lagðist upp í rúm, svo vakna ég bara allt í einu næsta dag heima hjá besta vini mínum. Þá hafði ég víst keyrt til hans um miðja nótt og eingöngu klæddur sloppi.

Heppinn að hafa ekki keyrt út í sjó eða eitthvað :/