Ókei það eru margir mávar þarna úti, en hvað eru þeir að gera okkur annað en að reyna að ná sér í mat til að halda sér á lífi.
Kanski finnst okkur þeir pirrandi… hvernig er það nógu góð ástæða til að drepa þá?
Ég er persónulega ótrúlega pirraður á fólki og hvernig það heldur að það megi drepa hvern og hvað sem það vill bara því það vill það.
Mávarnir hafa fullann rétt (eða nógu fullann…) á að vera hérna og svo lengi sem þeir eru ekki að gera okkur neitt nema að vera til. Vá þeir eru að éta rusl á götunni :o
Ég bara fatta þetta ekki.

Vinsamlegast discussið (ef það er ekki annar þráður fyrir… sem það líklega er)…
Muna “EFF-in þrú”: Hafa rök og engar móðganir við þá sem hafa ekki sömu skoðanir og þið.