Ég fór í sturtu áðan og var eitthvað stíf í öxlunum svo ég reyndi að liðka það aðeins til (best að gera það í heitri sturtu). Það virkaði ekki betur en svo að núna er ég með ógeðslegan sting frá haus og niður á bak. Vesta er að ég finn ekki vöðvann því hann er einhversstaðar undir svo ég get ekki einu sinni reynt að nudda hann :S Hvað sem ég geri, lít til hliðar, beygi mig niður, lyfti höndinni, ég finn alltaf sáran sting við hverja hreyfingu! Og af því ég var að koma úr ferðalagi er ég búin að týna íbúfen dollunni sem ég átti :S Eftir tæplega 2 tíma þarf ég að fara að vinna …

Þetta var smá svona aumingjanöldur frá mér og vöðvunum mínum …. :S