ATH. Strákar… Flestir ykkar fíla væntanlega ekki þetta umræðuefni. Ég varaði ykkur allavega við.



Ég HATA túrverki. Ég skil ekki hversvegna maður þarf að fá túrverki. Það er ekki sjálfar blæðingarnar sem ég er á móti þó ég vildi fegin sleppa þeim en túrverkirnir mega sleppa því að koma!
Ég átti að vera í fríi í dag en var beðin að leysa af og mér er alveg sama um það, ef ég nú bara gæti staðið almennilega án þessa að finna fyrir þessum bölvuðu verkjum! Ég vil helst vera heima hjá mér að sofa, ekki í vinnunni að DREPAST.

Úff.
-Tinna