Vá, núna verð ég bara að nöldra, ekkert smáá pirruð!

Það bjó kona á stigaganginum mínum sem var alltaf sívælandi í mömmu minni, og alltaf að setja einhverja miða á útidyrahurðina um að umgengnin hjá okkur (í minni fjölskyldu) væri ekki með sóma. Svo þegar hún var að þrífa ganginn þá svoleiðis henti hún bara skónum okkar út um allt! Hún var alltaf geðveikt leiðinleg við mömmu mína, og talandi illa um hana við aðra íbúa stigagangsins. Um leið og það flutti einhver nýr, þá fór hún til hans og sagði honum hvað við værum ömurleg í þessari fjölskyldu.

Loksins flutti þessi kerlingarskarf í burtu. Og núna þegar við mamma min vorum að koma úr ferðalagi, þá komum við að miða niðri á útidyrahurðinni og fyrirsögnin var “Íbúar takið eftir! (KRAKKAR)” Og við erum einu krakkarnir hérna. Fimmtán og sextán ára unglingar. Og það var verið að kvarta undan sóðaskap, og það var sagt að við höfðum verið að henda tyggjói og sleikjóbréfum út um stigaganginn, svo var sakað okkur um maaargt fleira það var listi !! Og sagt að margir á stigaganginum væru orðnir pirraðir. Svo talaði mamma við einn mann sem býr á stigaganginum okkar, og hann tók ekki eftir neinum sóðaskap.

En ég bara skil ekki hvernig við ættum að hafa sóðað út stigaganginn þegar við vorum ekki einu sinni heima! Úff, þessar konur í stigaganginum fá bara ekki nóg! >.<

Vá þið eruð heppin ef þið eigið ekki svona nágranna sem væla undan öööllu!