Fójj….ég vinn hjá póstinum og ber út hjá einhverri gamalli kellingu sem er alltaf glöð í bragði og segir alltaf hæ við mig þegar ég kem, en mér leið ansi skringilega þegar sú gamla var að keyra framhjá mér og kellan blikkaði mig! :O

Það er ekki á hverjum degi sem fólk blikkar mig en má ég vinsamlegast biðja um að það sé ekki fólk sem er 70 árum eldra en ég….