ég held að fólk ætti að hætta að tala um WW3 því að mér finnst það ólíklegt að þessi árás eigi eftir að leiða til WW3 og alls ekki til heimsendis eins og sumir hérna eru að halda fram.

Mér finnst það líka asnalegt að menn séu strax búnir að kenna Osmana Bin Laden um þetta, því að fáir vita í alvörunni hver gerði þetta. þó að Bin Laden hafi sagt að hann hafi ætlað að gera árás á BNA þá þarf það ekki að vera að hann hafi gert þetta.
ég vill benda á það að margir öfgahópar bendla sig við hryðjuverk þegar þau eru framin eða áður en þau eru framin til þess að vekja áherslu á málstað sinn, en neita síðan að hafa gert nokkuð þegar upp er staðið.

það hefðu þessvegna getað verið öfgahópar í BNA sem hefðu gert.
það hefði hver sem er getað gert þetta með smá pening og skipulagningu því að það eru margir sem vilja koma höggi á Bandaríkin af margvíslegum ástæðum.

ruglubulli
——————————