Mig langar til að spyrja hvort einhver veit um tengla þar sem hægt er að votta samúð sína vegna árásanna á bandaríska borgara?

Mér dettur í hug að ekki verði boðið upp á undirskriftalista bráðlega í bandaríska sendiráðinu.

Allavega langar mig til að láta í ljós hrylling minn og veita þann litla stuðning sem ég hef til að bjóða vegna þessara villimannlegu og siðlausu árása.

Samúðarkveðjur til fórnarlamba, vina, vandamanna og allrar bandarísku þjóðarinnar.