Oj það er eitthvað lag sem er alltaf verið að spila í útvarpinu. Bæði á Bylgjunni og á Rás2. Ég veit ekki með hverjum þar er, en þetta er ógeðslegasta lag sem ég hef heyrt. Jaa, það er allavega á topp tíu. Einhver gaur með geðveika svona gervi-hrjúfa-viskírödd syngur ógeðslega leiðinlegt lag sem virðist vera um 20 mínútna langt. Textinn er bara ein lína sem segir “þúsund þorskar á færibandi þokast nær þúsund þorskar á færibandi þokast nær þúsund þorskar á færibandi þokast nær þúsund þorskar á færibandi þokast nær þúsund þorskar á færibandi þokast nær þúsund þorskar á færibandi þokast nær þúsund þorskar á færibandi þokast nær þúsund þorskar á færibandi þokast nær þúsund þorskar á færibandi þokast nær þúsund þorskar á færibandi þokast nær þúsund þorskar á færibandi þokast nær þúsund þorskar á færibandi þokast nær þúsund þorskar á færibandi þokast nær þúsund þorskar á færibandi þokast nær þúsund þorskar á færibandi þokast nær þúsund þorskar á færibandi þokast nær þúsund þorskar á færibandi þokast nær þúsund þorskar á færibandi þokast nær…”

Veit einhver hvaða lag þetta er? Mig langar allavega mikið til að senda flytjandanum harðort bréf og gefa honum orð í eyra fyrir að senda svona ósóma út í heiminn.

Það var ekki annað í bili…