Ég er búin að vinna klukkan 14-15 á daginn og eftir það þá hundleiðist mér alltaf… Er nýflutt til Reykjavíkur og þekki ekki marga hérna…Ég væri alveg til í að kynnast nýju fólki.
Ég er alveg tóm um hvað ég gæti gert… Ég bý í Grafarvoginum og á ekki bíl þannig að ef þið vitið um eitthvað skemmtilegt þar eða nálægt þá megið þið endilega láta mig vita.
Hafið þið einhverjar hugmyndir fyrir mig?

Og viljið þið sleppa öllum skítköstum…
Takk fyri
Ég finn til, þess vegna er ég