Ohhh, djöfull var ég vitlaus áðan. Ég hringdi í einn vin minn áðan og hann eitthvað “blessaður” og ég heilsaði honum og byrjaði að tala og hann bara “jájá” “jájá” “já ok, bíddu aðeins” og ég beið í smá stund svo kom hann aftur og byrjaði að tala dáldið óskýrt og ég bara wtf…
Svo sagði hann eitthvað “jújújújújú, á ég að koma?” ég eitthvað “Nei, hvernig ætlaru eiginlega að koma?” og svona gekk þetta þangað til að ég fattaði að ég væri að tala við talhólfið hans.

Urrr….