Fyrir meira en hálfu ári síðan ákváðum við félagarnir að fara á roskilde festival. Við keyptum allir miða fyrir nokkrum vikum, nema ég keypti aðeins á eftir þeim. Ég pantaði frá exit.is og notaði visa kortið hennar mömmu (með hennar leyfi að sjálfsögðu) til að borga. Félagi minn fékk miðann sinn ekki fyrr en eftir u.þ.b. 3 vikur þegar hann pantaði sinn miða (einnig á exit)

En svo kíkti ég á tölvupóstinn minn í gær, sem ég geri sjaldan og þá sé ég tölvupóst frá exit.is

“Sæl /sæll

Til að við getum gengið frá greiðlsu á hróarskeldumiðanum fyrir þig þurfum við að fá skriflegt leyfi frá forráðamanni þar sem að þú ert ekki orðin/nn 18 ára.

Vinsamlegast láttu foreldra þína senda okkur þetta skriflegt í tölvupósti fyrir mánudaginn næsta (29.maí), þarf að koma fram nafn og kennitala beggja aðilia. Hafi þetta ekki
borist á mánudaginn verður ekki hægt að halda frá miða fyrir þig þar sem að mikil eftirspurn er eftir þessum fáu miðum sem eftir eru.
” svona hljóðar fyrri tölvupósturinn

“Sæl/ll

Samkvæmt tölvupósti sem var sendur 26.maí var gefin frestur til mánudagsins 29.maí til að ganga frá greiðslu og eða gefa leyfi fyrir yngri en 18.ára til að kaupa hróarskeldu miða.

Það staðfestist hér með að bókunin hefur verið feld niður þar sem ekki hefur enn borist greiðsla eða leyfi forráðamanns fyrir yngri en 18.ára.
” og þetta er seinni

Sá fyrri er sentur á föstudegi 26 maí og sá þannig ég hafði 3 daga til að sjá þennan tölvupóst og redda þessu.
Þegar ég fyllti út umsókina á netinu fyrir miðanum setti ég inn símanúmer ásamt öðru, að sjálfsögði var ekki hringt í mig til að láta mig senda nafnði á pabba og mömmu og kennitölu í tölvupósti því þau þurftu að gefa leyfi (hvernig vita þeir hvort ég skrifi það eða pabbi og mamma þegar þetta er í gegnum tölvupóst ?)

ohh well þetta er kanski svoltið samhengislaust því ég er að springa úr reiði. Komst að þessu í gærkvöldi. Er búinn að vera að telja niður í fleiri vikur fyrir hátíðna, búinn að taka mér frí í vinnu, búinn að gera allt klárt og kaupa það sem ég þarf….en vantar miða þökk sé exit.is

Þannig ef þú ert með miða sem þú vilt selja eða veist um einhver þá endilega hafðu samband í síma 8487138 eftir klukkan 16 á daginn