Greddast er ekki orð. Orðið gredda getur haft tvær merkingar en hvorug; Annarsvegar gredda sbr. losti og hinsvegar -gredda sbr. viðskeyti sem táknar að eitthvað sé lélegt (hnífsgredda, lélegur hnífur). Það gæti verið að einhverjum hafi dottið í hug að nota þetta sem sagnorð um annaðhvort eitthvert sem er að fyllast samræðisfýsn eða eitthvað sem er að verða lélegt. Ég skoðaði þetta aðeins á Google og fólk virðist nota þetta um það þegar fólk er að klæmast, ég skil hinsvegar ekki af hverju þau nota það ágæta orð ekki.
Þetta er hinsvegar EKKI alvöru orð. Þú ættir kannski að kaupa þér orðabók og reyna laga málfarið þitt aðeins. Það er lágmark að skrifa skítsæmilegt mál.