Úff, ég verð bara að fá að nöldra aðeins.

Ég vinn í bakaríi, sem mér finnst frábært. Skemmtileg vinna, bæði þegar ekkert er að gera og þegar mikið er að gera.
Vandamálið er að ég á ekki nógu góða skó! Ég er búin að prófa 4 gerðir af skóm í vinnunni en ég enda alltaf heima eftir daginn með verk í iljunum og kálfunum og núna, í vinnunni, er ég að drepast í bakinu!
Mér finnst mjög gaman að vinna hérna en ég bara er að deyja eftir 6 tíma vinnudag.
Bæði þegar ég stend eða labba allan daginn og líka þá daga sem er lítið að gera og ég sit bara og geri um það bil ekkert.

Þurfti bara að koma þessu frá mér.
-Tinna