Þetta spurning tengist ekki hjálp enda er ég ekki í neinni neyð með þetta en ég vildi bara forvitnast með því að spurja ykkur hvort þið vitið um einhvern handboltatölvuleik. En ég hef aldrei séð neitt slíkt áður. Síðast rakst ég bara á lélegan handbolta managerleik en ég er að leita að handboltaleik sem er svipaður og fifa og nba leikirnir frá EA Sportsgame. En ef enginn handboltatölvuleikur er til hver skyldi skýringin vera á því þar sem handboltinn er líka eins vinsæl íþrótt og fótboltinn og NBA?