Nú er komið þónokkuð síðan afnumið var stigagjöf fyrir kannanir en samt heldur fólk áfram að senda inn kannanir með valmöguleikanum - “Stig”.

Gott fólk… það þýðir ekki að vera að halda í gamla tíma og reyna að fá þetta aftur. Mér persónulega finnst stigagjöfin núna vera markvissari því nú þurfa stigahórur að hafa fyrir því að verða sér út um stig.

Hættið að stigahórast og leggið ykkar að mörkum til að gera hugi.is að betri stað þar sem virkilega er hægt að eyða fullt af klukkustundum í að fræðast um allan fjandann.

Þessi grein er ekki til að redda höfundi stig… ( ehe )