Ég er semsagt í Bæjarvinnunni sem er ekkert alveg voðagaman en krakkarnir sem eru með mér í hóp eru fínir… flokkstjórinn ekkert sá skemmtilegasti en það er svo sem í lagi… en það sem mig langar til að Nöldra yfir er ein stelpa sem var með okkur í dag… hún er öðrum hóp en það var enginn annar mættur úr hennar hóp í dag þannig að hún og flokkstjórinn hennar voru með okkur…
Við vorum að raka en á meðan sat hún og talaði við flokkstjórana… síðan kom hún til okkar hélt á hrífu… en það var líka það eina sem hún gerði hún stóð bara og æfði sig í “Hrífu-fimleikum” frekar pirrandi þótt maður horfði á hana með hatursaugnaráði virtist það ekki koma neitt við kauninn á henni… :S síðan datt henni allt í einu í hug að hlaupa af stað dragandi á eftir sér hrífuna, þannig að allar endurnar sem voru þarna flugu upp… þá var ég orðin svo pirruð að ég kallaði á hana… “Ertu að leika þér að því að hræða fuglana, Hvað er að fólki?” þá hætti hún… labbaði svo til baka og þá spurði ég hana hvað hún væri gömul og hún bara uu… jafngömul og þú (Wow feis…) og ég bara nei veistu mér sýnist ekki þá fóru allir að hlæja að henni… og hún sagði ekkert mikið meira eftir það…

djöfull er svona fólk pirrandi…
All Together Now