ARRRRG!

Ég er ekkert smá svekktur núna. Belle & Sebastian koma og spila hérna fyrir austan á Borgarfirði eystri 29. júlí en ég verð í Reykjavík á ReyCup á sama tíma. Ég kemst síðan ekki á tónleikana á NASA afþví að ég hef ekki aldur á þá! Hvernig væri að flytja þetta í Laugardalshöll, áhuginn fyrir þessari hljómsveit er örugglega nógu mikill til að fylla hana!

Til að bæta ennfrekar ofan á pirring minn þá kom pabbi minn inn áðan og vakti mig með fjóra miða á tónleikana á Borgarfirði í hendinni. Svekkjandi.