Ég var að pæla í einu…

Þegar ég er að spila aðeins á bassa í gegnum æfingarmagnarann og í headphone-a þá er náttúrulega oft gaman að spila með einhverri tónlist. Vandamálið er það að þegar ég er með bassann í headphone-um þá er vesen að hlusta á tónlistina líka.

Þar af leiðandi var ég að pæla hvort það væri hægt að kaupa einhvernvegin snúru eða stykki svo ég geti tengt þetta saman í einn headphone…

Ef það er hægt veit einhver hvar ég fæ svoleiðis græju?