Já, það er gaman að því.

Ég á alveg voðaskemmtilega ömmu. Bæði varðandi það að hún er þrælfín, plús að hún er svolítið kölkuð.



Í gær var hún að passa 10 ára systur mína, þær einar heima. Síðan kemur mamma inn, og þá stendur amma fyrir utan baðherbergisdyrnar og lemur á þær.

“Þú verður víst að opna Hulda Rún! Síminn er að hringja og ég finn ekki takkann til að svara!”

Þá heldur hún á fjarstýringunni að sjónvarpinu og skilur ekkert afhverju hún getur ekki svarað henni.

Síðan hleypur mamma framhjá til að ná símanum, en þá segir amma bara “Nei, ég er með símann hérna!”



Já… Vildi endilega skrifa þessa sögu hingað. Veit ekki hví. Enjoy.