Ég ákvað að setja þetta á forsíðuna þar sem /baekur er frekar dautt áhugamál. Meiri líkur á að ég fái svör hér.

Eins og einhverjir ættu að vita er rithöfundurinn Ian Rankin að fara lesa upp úr bókum sínum í dag í Mál og Menningu á Laugavegi.

Nú langar mig að kaupa einhverjar bækur eftir hann. Hafið þið lesið bækurnar hans? Ef svo er, hverjar og voru þær góðar?

Hann hefur skrifað svo margar bækur að maður veit hreinlega ekki hverjar maður á að kaupa því þær eru nánast allar til sölu í M&M í tilefni komu Ian Rankins.
Lífið gengur út á að vera númer 1, ekki númer 2.