Nú verð ég að varpa mínum þjáningum yfir á ykkur. Málið er að ég hef verið mjög <a href="http://www.hugi.is/heilsa/greinar.php?grein_id=22482">mikið niðurdreginn</a> undanfarið árið eða svo, að vísu með hléum, en upp á síðkastið hefur það verið non-stop, ég brosi varla lengur. Er áhugalaus og framtakslaus, kem engu í verk í vinnunni (og því kannski skiljanlegt að þeir vilji losna við mig)
Og svo kom skellurinn, á fimmtudaginn settist forstjórinn niður með mér og sagði að þeir yrðu að láta mig fara, sökum verkefnaskorts. Auðvitað hefði ég átt að mótmæla, en ég bara missti allt niður um mig, sagði já og amen og fór svo bara heim. Því ég er búinn að vera hér lengi. Það er fólk að vinna við sömu störf sem var ráðið hér í sumar, vissulega betri starfskraftar, meðan ég er í svona ástandi, en þeir vita nákvæmlega hvað er að, og ég hef beðið um að mér yrði sýndur skilningur og smá stuðningur meðan ég stend í þessu. Þannig að mig grunar að þeir séu bara að losa mig við sig, svona þegar ég er búinn að hugsa málið. Hvað á ég að gera? Ég hef ekki endalausan tíma en það er snúið að fara að rífast þegar maður er svona down. Þetta hefur reyndar verið vítahringur; minni áhugi->minni afköst->minni verkefni->minni áhugi…
Ég er að spá í að senda afrit til VR (láta þá vinna fyrir iðgjöldunum sínum) :)
xxx