Reykingarfólk er spes. Þetta lið er svo samhelt. Eins og þegar maður er í vinnu þar sem allir fara út að reykja þegar það er pása. Vill þannig til kannski að allir reykja nema þú og leiðinlegi gaurinn. Þá er maður skilinn útundan og svo koma þau aftur inn hlæjandi. Segjandi sígarettu brandara. Einkahúmor hópsins.

Eina ráðið er að stofna sinn eigin hóp. Allir sem mæta með skyr.is í nesti. Söfnumst saman!