*Grenj* hahahahahahahahahahahahahahahahhahahahhahahahhahahahhahahahahhahahahahh.

Ég stóð þó við við loforð mitt. Ég ætlaði að hlægja að ykkur ef Silvía vinnur ekki og ég gerði það. Þarna sjáið þið krakkaskammirnar ykkar að það þýðir ekkert að vera með stæla og móðga önnur þjóð og auglýsa sig sem fávita. *ahem* Já ég er auðvitað undantekning á þessu en ég er ekki með stæla við neina þjóðir og læt sem ég eigi allt. Málið er að þetta var alltog mikið púður í þetta lagt.

Yfirtaka austantjaldarþjóðarinnar verður gífurleg í úrslitunum og þetta heldur áfram. Feginn er ég sem Íslendingur að við tökum ekki lengur þátt í þessu vitleysu lengur. Svo er þetta bara gott á ykkur ungu gsm þjóðina. Reyndar skiptir engu máli hvort við hefðum átt að senda Silvíu eða Regínu Ósk lengur.

Ég var búinn að vara ykkur við þessu að austantjaldalöndin væri með yfirvöldin í þessari keppni. Þau norðurlönd sem eru núna í úrslitunum eru bara heppinn að geta tekið þátt en ég held að þeim verði líka sparkað aftur í úrslitunum og austantjaldalöndin verða eftir. En svona fór það.

Krónan á eftir að hækka eftir þetta því þetta er orðið alltof rándýrt spaug